Kvennaskólinn
Listasafn Íslands
Skúlagata 57
Borgartún 7
Fasteignir ríkissjóðs hafa umsjón með fasteignum í eigu ríkisins í umboði fjármálaráðuneytis. Fjöldi þeirra, víðsvegar um landið, er um 290. Að auki tekur stofnunin fasteignir á leigu á almennum markaði og endurleigir þær stofnunum ríkisins.
Megin verkefni stofnunarinnar eru útleiga húsnæðis til ríkisstofnana og að viðhalda því og endurbæta svo það nýtist sem best starfsemi leigjenda.
Fasteignum ríkissjóðs hefur einnig verið falin umsjón með leiðréttingu á skráningu fasteigna ríkisins í opinberum skrám þannig að þær endurspegli rétta eignastöðu ríkisins. Ríkið geti að því búnu gert fullnægjandi grein fyrir eigum sínum hvað varðar fjölda, staðsetningu, notkun og verðmæti.

Að ósk menntamálaráðuneytisins hafa Fasteignir ríkissjóðs tekið við rekstri húsnæðis Menntaskólans í Reykjavík. Þá hefur stofnunin tekið að sér rekstur Fríkirkjuvegar 1 sem bætist við húsakost Kvennaskólans. Um er að ræða merkar byggingar sem eiga sér langa sögu í menntamálum Íslendinga.
Aðalbygging Menntaskólans í Reykjavík var tekin í notkun árið 1846 þar sem Latínuskólinn var til húsa til ársins 1904. Það ár tók til starfa, með breyttri reglugerð, Hinn almenni menntaskóli í Reykjavík. Frá árinu 1937 hefur skólinn heitið Menntaskólinn í Reykjavík. Frá því að Alþingi var endurreist 1845 þar til Alþingishúsið var byggt 1881 hafði það aðsetur í Latínuskólanum (Lærða skólanum). Þá var þjóðfundurinn 1851 haldinn á sal skólans sem og þingfundir sem haldnir voru að jafnaði annað hvert ár að sumri.
Fríkirkjuvegur 1, Miðbæjarskólinn, er byggður sem barnaskóli árið 1898. Húsið er timburhús á steinhlöðnum kjallara og er 2.930 fermetrar. Eftir að barnaskóli var aflagður í húsinu voru þar Menntaskólinn við Tjörnina, Námsflokkar Reykjavíkur og síðast skrifstofur leikskóla- og menntasviðs Reykjavíkurborgar.
Aðalbygging Menntaskólans í Reykjavík og Fríkirkjuvegur 1 eru hvort tveggja friðaðar byggingar og þarf því samráð við Húsafriðunarnefnd vegna allra breytinga og viðhalds.

Bænahúsið að Efri-Brú
Minnsta hús í umsjón Fasteigna ríkissjóðs er þetta bænahús að Efri-Brú í Grímsnesi.
Húsið er byggt af Böðvari Guðmundssyni, fyrrum bónda að efri Brú og er byggt eftir fyrirmynd af samskonar húsi sem mun hafa verið á þessum stað á 14. öld.

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00
Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík
Sími: 520-5600
Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is