Gerð reikninga

Frágangur reikninga

Gefnar eru út verkbeiðnir fyrir öllum verkefnum sem unnin eru fyrir Fasteignir ríkissjóðs. Verkbeiðnin er tæki til að hrinda verkefnum í framkvæmd en á henni kemur m.a. fram lýsing á verkinu og hvenær því skuli lokið. Verkbeiðnir eru sendar rafrænt til þess sem á að vinna verkið og er framvísun á endurriti af beiðninni forsenda þess að reikningur fáist greiddur á réttum tíma.
Reikninga skal stíla á Fasteignir ríkissjóðs, Borgartúni 7, 150 Reykjavík. Þeir skulu vera forprentaðir eða á öðru viðurkenndu formi og bera með sér nafn, kennitölu og virðisaukaskattsnúmer útgefanda reiknings, ásamt reikningsnúmeri.
Texti reiknings skal vera skýr og lýsandi. Í honum skal gera grein fyrir hvar vinna var innt af hendi eða vörur afhentar, þ.e. heimilisfang og / eða heiti stofnunar. Vönduð og skýr framsetning auðveldar greiðsluferlið en óljós framsetning getur leitt til þess að dráttur verði á greiðslu reikninga.
Fasteignir ríkissjóðs áskilja sér a.m.k. eina viku til að yfirfara reikninga og staðfesta til greiðslu. Allir reikningar eru framsendir til Fjársýslu ríkisins sem annast greiðslu þeirra. Óraunhæft er að ætla að ferlið frá því reikningur er móttekinn og þar til hann er greiddur, þ.e. móttaka, staðfesting og greiðsla, taki minna en þrjár heilar vikur og skal, ef ekki er um annað samið, taka mið af því þegar gjalddagi / eindagi er ákveðinn á greiðsluseðli.
Greiðsla reikninga frá Fjársýslu ríkisins getur verið með þrennum hætti:

  • Ef greiðsluseðill fylgir er greitt samkvæmt honum á eindaga.
  • Ef ekki fylgir greiðsluseðill er greiðsla millifærð á bankareikning viðkomandi ef þær upplýsingar liggja fyrir.
  • Ef upplýsingar um bankareikning liggja ekki fyrir er ávísun send á heimilisfang viðkomandi.

Í seinni tveimur tilvikunum er við það miðað að reikningar séu greiddir innan eins mánaðar frá útgáfu þeirra.

 

 

Sjómannaskólahúsið

 

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00

Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík

Sími: 520-5600

Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is