Í ríkiseigu

Fasteignir ríkissjóðs hafa umsjón með skráningu fasteigna ríkisins í opinberum skrám þannig að þær endurspegli rétta eignastöðu ríkisins.
Markmiðið er að fasteignaskrá Þjóðskrár geti leitt fram allar upplýsingar um eignir ríkisins þannig að það geti gert fullnægjandi grein fyrir eigum sínum hvað varðar fjölda, staðsetningu, notkun og verðmæti.

Taflan sýnir grófa samantekt yfir eignir ríkisins eftir síðustu áramót:

Athugasemdir:
Mat er í m. kr.. Hér er tekið tillit til eignarhluta við útreikning á stærð og mati en stærðir eru skráðar í langflestum tilfellum. Almennt eru mannvirkin eignir sem nýttar eru af ríkinu sem að auki greiðir allan rekstrarkostnað. Heildarflatarmál ofantaldra eigna er 1.088.321 m2, fasteignamatið 120.275 m.kr. og brunabótamat 235.534 m.kr.. Jarðir eru ekki metnar í samræmi við reglur um viðmiðun við markaðsverð fasteigna. Þá er fasteignamat ekki til fyrir allar lóðir. Grunnskólabyggingar eru ekki taldar hér með þótt einhver hluti þeirra séu enn skráðar í eigu ríkisins. Af húsum og mannvirkjum hér að ofan eru um 250 eignir hlutaeignir, einkum á móti sveitarfélögum. Skráning stærðar á jörðum og lóðum er ekki marktæk og er henni því sleppt. Þar sem misjafnt er í fasteignaskrá hvernig mannvirki á jörðum eru skráð gefa tölur um brunabótamat á þeim ekki rétta mynd heldur skal líta til heildarniðurstöðu.

 

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00

Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík

Sími: 520-5600

Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is