Framkvæmdir

Margvíslegar framkvæmdir standa yfir hjá Fasteignum ríkissjóðs og er hér farið yfir stöðu nokkurra.

 

Sjúkrahúsið á Akranesi

Utanhúsviðgerðum á elsta hluta hússins er lokið. Þá hafa farið fram múrviðgerðir á útveggjum ásamt endurnýjun á gluggum og málningu. Einnig voru þakklæðning og þakrennur endurnýjaðar.

 

Tækniskólinn

Nýlega var tekið í notkun eldhús og mötuneyti fyrir nemendur og kennara Tækniskólans. Aðstaðan er á 4. hæð í austurenda hússins og er hún öll til fyrirmyndar.

 

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Útgarður, garður sem liggur fyrir miðju í eldri hluta skólans, var endurnýjaður árið 2010, tré grisjuð, garðurinn hellulagður að hluta og lýstur upp. Verður hann nú opinn nemendum..

 

Vörðuskóli

Lokið er utanhúsviðgerðum, endursteinun og endurnýjun þakpappa á Vörðuskóla við Barónsstíg. Talsverðrar steypuviðgerðar var þörf. Allt gler í skólabyggingunni var endurnýjað.


 

Hverfisgata 113 - 115

Í haust var boðin út utanhússklæðning á eldri hluta Lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í Reykjavík. Skipt verður um alla glugga og nýr dúkur settur á þakið. Atafl ehf. var lægstbjóðandi og fékk verkið á kr. 98.866.955. Framkvæmdum á að ljúka í maí 2012.

 

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra

Síðastliðið sumar var verknámsbyggingin máluð að utan og gert við þak og glugga. Verkefnið var boðið út á Sauðárkróki og var lægstbjóðandi Jón Svavarsson málarameistari. Við verknámsbygginguna stendur nú yfir standsetning á lóð að framanverðu, með það fyrir augum að bæta aðgengi nemenda með skerta hreyfigetu. Meðal annars var settur hiti í stéttar og tröppur aflagðar.

 

Laugar í Reykjadal

Síðastliðið sumar var lokið við síðari áfanga breytinga í bóknámshúsi. Á árinu 2010 var aðstaða kennara stórbætt, en í þessum áfanga var komið að endurbótum á nemendaaðstöðu og snyrtingum í kjallara. Einnig voru kennslustofur, afgreiðsla og nemendainngangur á 1. hæð endurnýjuð.
Síðasta haust stóðu einnig yfir utanhússviðgerðir á Álfasteini og Þróttó. Verkið samanstendur af múrviðgerðum, gluggaviðgerðum, og málun útveggja. Bæði verkefnin voru boðin út og var Trésmiðjan Rein lægstbjóðandi.

 

Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki

Síðastliðið sumar var unnið við utanhússviðgerðir á dvalarheimilinu. Um var að ræða talsverðar múrviðgerðir, fúgaviðgerðir á gluggum, sett sólvarnargler í álagshliðar og báðar álmurnar málaðar. Lægstbjóðandi var Doddi málari ehf, í málningarvinnuna og K-Tak í smíðavinnuna.

 

Menntaskólinn á Akureyri

Sett var ný lyfta fyrir fólk með skerta hreyfigetu í Möðruvelli. Engin lyftustokkur var fyrir í húsinu og þurfti því að hanna verkið í heild sinni. Það verk var unnið af Arkitektúr.is og Verkís á Akureyri.

 

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Síðastliðið sumar var skipt um gólfefni á göngum eftir minnst 30 ára notkun. Keyptar voru teppaflísar frá sama framleiðanda vegna fádæma endingar. Einnig var unnið að lagfæringum á lóð skólans, m.a. framan við leikfimisal og við nemendainngang. Áfram verður unnið við frágang lóðarinnar á þessu ári. M.a. verður lokið við veg fyrir slökkvilið á baklóð og gengið frá lóð við kennarainngang.

 

Framhaldsskólinn á Húsavík

Síðastliðið sumar var unnið að endurbótum á nemendaaðstöðu í kjallara skólans. Opnað var á milli kjallara tveggja byggingahluta og jafnframt bætt aðstaða nemenda til afþreygingar og matar.

 

Útgarður 1, Húsavík

Á árinu 2010 var gert við þak og flasningar. Á síðasta ári var bifreiðageymsla öll lagfærð að innan og 2012 verður þak málað og gluggar einnig.

 

Almennt viðhald húseigna

Auk þessa er í gangi almennt viðhald bygginga, innanhúss og utan á fasteignum í umsjá FR.

 

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00

Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík

Sími: 520-5600

Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is