
Í nágrannalöndum okkar hefur í vaxandi mæli verið hugað að aðferðum til að minnka líkindi á mistökum í undirbúnings- og hönnunarferli bygginga. Verulegt skref í þessa átt hér á landi er upptaka á byggingaupplýsingalíkani - „BIM – Building Information Model“. Fasteignir ríkisjóðs taka þátt í verkefninu sem á að taka um þrjú ár.
Aðferðafræði BIM byggist á því að allir aðilar verkefnis skiptast á upplýsingum sem tengjast viðkomandi byggingu í sameiginlegu upplýsingalíkani. Möguleiki er að hafa upplýsingar réttar á hverjum tíma og aðgengilegar í rafrænu umhverfi. Þetta gefur arkitektum, verkfræðingum, öðrum tæknimönnum og verkkaupum skýrt yfirlit yfir öll verkefni þeirra. BIM er notað á undirbúningsstigi, við hönnun, framkvæmd og mögulega við rekstur byggingarinnar. Skilgreindur er frá upphafi þáttur hvers aðila í ferlinu og gerðar ákveðnar kröfur um uppsetningu og vinnulag. Með markvissum vinnubrögðum mun hönnunarmistökum fækka.
BIM byggir á hlutbundinni hönnun og inniheldur fleiri gögn en eru í venjulegu CAD líkani. Kerfið geymir bygginguna í þrívídd með öðrum byggingartengdum gögnum. Til að auka samhæfingu er notaður opinn skráarstaðall, IFC, og aðrar viðmiðanir alþjóðasamtaka.
Hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, FSR, hefur verið fylgst með þróun kerfisins, m.a. á Norðurlöndum. FSR á í samstarfi við NKS (Nordisk Kontakt for Statsbygninger) um kerfið. Danir eru komnir langt í þróun BIM og þar eru samstarfsaðilar Bips (Byggeri, informationsteknologi, produktivitet og samarbejde) og DDB (Det Digitale Byggeri). Á Íslandi var komið á þróunarvettvangi í mannvirkjagerð á árinu 2007. Markmið verkefnisins er að efla samstöðu meðal opinberra verkkaupa um notkun byggingaupplýsingalíkana í opinberum framkvæmdum til að auka gæði og bæta hönnun.
Verkefnið er í stórum dráttum eftirfarandi:
Í desember 2008 var formlega efnt til verkefnisins „BIM-Ísland“ með þátttöku níu stofnanna. Þær eru Brunamálastofnun, Fasteignir ríkissjóðs, FSR, Íbúðalánasjóður, Landsnet, Landsvirkjun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Orkuveita Reykjavíkur, Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins. Ráðinn hefur verið starfsmaður til að stýra verkefninu hjá FSR. Hann mun vinna að upptöku kerfisins og hafa frumkvæði að kynningu BIM - aðferðafræði. Staðið verður fyrir námskeiðum og ráðstefnum ásamt því að aðstoða framkvæmdaaðila sem taka upp BIM - aðferðafræði.
Pistillinn er skráður með hliðsjón af upplýsingasíðu FSR um verkefnið - sjá hér.
Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00
Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík
Sími: 520-5600
Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is