• Eldri fréttir

Laugavegur 166

Haustið 2010 var var unnið við stækkun og breytingar á húsnæði ríkisskattstjóra að Laugavegi 166, 1. hæð. Útbúinn var nýr afgreiðslusalur og byggt anddyri framan við aðalinngang. Ástæðan var flutningur á afgreiðslu skattstofunnar úr Tollhúsinu við Tryggvagötu. Verkið var boðið út síðsumars 2010 og var samið við lægstbjóðanda, Sérverk ehf. Húsnæðið var hannað af arkitektastofunni Glámu Kím og tekið í notkun í janúar 2011.

 

Sjúkrahúsið á Blönduósi

Talsverðar framkvæmdir voru við sjúkrahúsið síðastliðið sumar. Meðal annars var lokið við að skipta um alla kvistglugga, gert var við þakrennur og öll þök máluð. Einnig voru malbikuð stæði við sjúkrahúsið, við vörumóttöku og settur hiti í stéttar.

 

Sjúkrahúsið á Siglufirði

Sjúkrabílainnkeyrsla hefur verið standsett og gerð tenging inn í spítalann um
sjúkramóttöku. Verkefni sem ekki var lokið þegar heilsugæsluhúsið var byggt.

 

Ægisbyggð 8 á Ólafsfirði

Húsið hefur allt verið lagfært að utan, m.a skipt um þakjárn. Þá voru veggir og gluggar
málaðir.

 

Heilsugæslustöðin á Þórshöfn

Á síðastliðnu ári var brunavarnakerfi endurnýjað og brunavörnum komið í lag.

 

Sjúkrahúsið á Húsavík

Á síðasta ári var hitakerfi sjúkrahússins endurnýjað. Kerfið er hannað af Verkfræðistofu Norðurlands.

Gamli spítalinn var gerður upp að utan á árinu 2009 og var húsið málað að utan á síðasta ári.

 

Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki

Gamla verknámshúsið hefur verið gert upp að innan vegna tenginga og aðlögunar að viðbyggingu við nýrra hús . Tréiðnaðardeildin flytur í viðbygginguna og þar með færist til öll önnur starfsemi eldra hússins.

 

Eignir í rekstur

Fasteignir ríkisssjóðs tóku við umsýslu tveggja eigna í mars 2011. Það eru Arnarholt á Kjalarnesi, sem áður heyrði undir Landspítala og Bústaðavegur 7 sem áður hýsti Landsnet.
Enginn rekstur er í Arnarholti en það hefur verið leigt út undanfarið til einstakra skammtímaverkefna. Ekki eru áform um framtíðarnotkun Arnarholts enn sem komið er.
Eins og kunnugt er sameinuðust Veðurstofa Íslands og Vatnamælingar fyrir skömmu. Veðurstofan hefur til margra ára verið til húsa að Bústaðavegi 9. Með sameiningunni bætist Bústaðavegur 7 við húsnæði hinnar nýju stofnunar.

 

Heiðarvegur 15 Vestmannaeyjum

Í húsinu er aðstaða fyrir embætti sýslumanns, skattstofuna og tollstjóra. Á þaki hússins voru Eternit-þakplötur og var þeim skipt út fyrir báruál. Verktakafyrirtækið 2-Þ tók að sér verkið en þakið var orðið mjög lélegt.

 

Dílahæð 3 og 5 í Borgarnesi

Víða um land eru embættishús í umsjón Fasteigna ríkissjóðs.
Að Dílahæð 3 og 5 Í Borgarnesi hafa þessi hús verið tekin í gegn að utan og innan í sumar.

 

Heilsugæslustöðin Borgarnesi

Heilsugæslustöðin í Borgarnesi var byggð árið 1973. Unnið er að því að taka húsið í gegn að utan.

 

Héraðsdómur Reykjavíkur

Hús Héraðsdóms við Lækjartorg hefur verið lagfært að utan, meðal annars endursteyptur
Íburðarmikill plötukantur ofan á steinhleðslunni, Pálshús endursteinað, gluggar gerðir upp og
bakhliðar endurmálaðar. Verkefnið var boðið út af Verkfræðistofunni Ferli f.h. Fasteigna ríkissjóðs og unnið af verktakafyrirtækinu Magnús og Steingrímur ehf.

 

Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra

Margvíslegar endurbætur hafa staðið yfir við skólann að undanförnu, m.a. var máluð heimavistarbyggingin og verknámsbyggingin, en bóknámsbyggingin var máluð árið 2007. Auk þess var bætt aðgengi og aðstöða fyrir fatlaða á heimavist ásamt því að útbúa nýja eðlisfræðikennslustofu í verknámsbyggingunni o.fl..

 

Meðferðarheimilið Stuðlar

Meðferðarheimilið Stuðlar skemmdist mikið í eldsvoða á árinu 2007. Gæsluhluti heimilisins gjöreyðilagðist og hefur nú verið endurbyggður og opnaður að nýju. Endurbyggingin var unnin af verktakafyrirtækinu Stólpa ehf.

 

Sýsluskrifstofan á Eskifirði

Framkvæmdir hafa staðið yfir við viðbyggingu við sýsluskrifstofu og lögreglustöð á Eskifirði. Stækkunin er um 170 fermetrar á tveimur hæðum. Framkvæmdum er lokið.

 

Eldri fréttir

2007

Viðurkenning

Árið 2006 veitti Reykjanesbær Fasteignum ríkissjóðs viðurkenningu fyrir fallega uppgert hús sýslumannsembættisins að Vatnsnesvegi 33 í Keflavík en unnið hefur verið að endurbótum undanfarin ár. Lóð hefur verið lagfærð og umhverfi snyrt. Einnig var skipt um glugga, húsið málað að utan og settur harðviður á milli súlna.

Þjóðleikhúsið

Vinna við utanhússviðgerðir gengur vel . Unnið er að múrbroti á anddyrisbyggingu, járnbendingu og uppbyggingu á þökum vesturhluta. Endursteypu á turni og hliðum er lokið. Í undirbúningi er ásetning jöfnunarlags undir steiningu. Verklok múrviðgerða miðast við 25. júní 2007. Næsti áfangi er ísetning nýrra glugga.

Flensborg

Byggingu nýrrar kennsluálmu við Flensborgarskóla er lokið. Samstarfssamningur er í gildi milli Fasteigna ríkissjóðs og Hafnarfjarðarbæjar um breytingar og endurbætur á eldra húsnæði skólans sem felast í breyttu fyrirkomulagi, endurnýjun lagnakerfa og uppsetningu á lyftum. Endurnýja á raforkuvirki og setja upp brunaviðvörunarkerfi. Framkvæmdir dreifast á þrjú ár og skal lokið árið 2008. Fyrsta áfanga verksins er lokið og hafist hefur verið handa við annan áfanga.

 

Viðbygging við Menntaskólann á Egilsstöðum

Haustið 2006 var tekin í notkun u.þ.b. 1100 m² viðbygging við Menntaskólann á Egilsstöðum. Byggingin er viðbót við bóknámshús sem byggt var árið 1987. Á neðri hæð er fyrirlestrasalur með sætum fyrir 80 manns, fjarfundastofa og tölvustofa auk tæknirýmis o.fl.. Á efri hæð er stjórnunar- og skrifstofurými, vinnuaðstaða kennara og auk tveggja kennslustofa og hópvinnuherbergis fyrir nemendur. Aðalhönnuður hússins er Arkitektastofan OG ehf. og aðalverktaki Tréiðjan Einir ehf. á Egilsstöðum. Um eftirlit sá Aðalsteinn Þórhallsson starfsmaður Hönnunar á Egilsstöðum.

Húsnæði Menntaskólans á Egilsstöðum - viðbygging lengst til hægri

 

Flensborg - vegna nýbyggingar

Miklar framkvæmdir hafa verið við Flensborgarskóla í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Lokið er viðbyggingu við skólann. Samhliða var ráðist í nauðsynlegar breytingar og endurinnréttingu í báðum eldri húsum skólans sem einkum snúa að eldvörnum. Sú framkvæmd mun dreifast á þrjú ár og ljúka 2008.

 

 

Setberg - utanhússviðgerðir og endurinnrétting

Lokið hefur verið við að endurbyggja hús sem upphaflega hýsti Atvinnudeild Háskóla Íslands við Suðurgötu. Húsnæðið er notað sem skrifstofuaðstaða fyrir Þjóðminjasafnið.

 

Verkmenntaskóli Austurlands

Nýlega var samþykkt stækkun á verknámshúsi Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þá er unnið að endurbótum í öðrum hlutum skólans og heimavist.

 

Heilsugæslustöðin á Hvammstanga

Á siðasta ári var byrjað á viðgerð á útveggjum og þaki Heilsugæslustöðvarinnar á Hvammstanga. Verkinu verður framhaldið á þessu ári. Verktaki er Villi Valli ehf. á Hvammstanga. Um útboð og eftirlit sér verkfræðistofan Ráðbarður.

 

Tollhúsið við Tryggvagötu

Sumarið 2008 var gert við mósaikmynd Gerðar Helgadóttur á suðurvegg Tollhússins við Tryggvagötu í Reykjavík. Myndin er um 200 m2 að flatarmáli og var á sínum tíma unnin og sett upp af hinu þýska fyrirtæki Oidtmann bræðra í Linnich í Þýskalandi. Lauk því verki árið 1973. Fyrirtæki Oidtmann bræðra vann að viðgerðinni. Fyrirtækið er um 150 ára gamalt og nú rekið af 5. ættlið fjölskyldunnar.

 

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Árið 2008 var farið í gagngerðar endurbætur á húsnæði skólans. Elsti hlutinn var steinaður og gluggar lagfærðir. Á þessu ári var svo miðhluti hússins málaður.

 

Skúlagata 57

Miklar breytingar hafa átt sér stað að Skúlgötu 57. Þar sem Ríkisendurskoðun er til húsa. Byggt hefur verið yfir svalir að hluta á fjórðu hæð. Nú er verið að innrétta skrifstofurými á fyrstu hæð sem snýr að Skúlatúni.

 

Heilsugæslustöðin Mývatni

Síðastliðið sumar var gert við húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar á Mývatni. Gert var við steypuskemmdir og húsið málað í heild sinni. Fyrir nokkrum árum var húsnæðið gert upp að innan.

 

Laugar í Reykjadal

Í sumar var unnið að standsetningu lóðarinnar umhverfis skólabyggingarnar í samvinnu við skólastjórnendur. Lagðir voru upphitaðir stígar milli bygginganna á lóðinni og önnur svæði sléttuð og þökulögð. Áður hafði verið gengið frá bílastæðum.

 

Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki

Á síðasta ári hófst vinna við endurnýjun á brunaviðvörunarkerfi sjúkrahússins, heilsugæslustöðvarinnar og hjúkrunarheimilisins á Sauðárkróki. Jafnframt verða brunavarnir endurbættar og færðar til betra horfs. Verkefnið er unnið af rafverktakafyrirtækinu Tengli ehf. á Sauðárkróki og er uppfærsla brunavarnauppdrátta og eftirlit með verkinu í höndum verkfræðistofunnar Stoðar ehf. á Sauðárkróki.

 

Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi

Unnið hefur verið að endurnýjun á raflögnum og rafmagnstöflum í hluta sjúkrahússins á Blönduósi. Reiknað er með að unnt verði að ljúka verkefninu á þessu ári. Verkið er unnið af Rafþjónustu HP. á Blönduósi.

 

Verkmenntaskólinn á Akureyri

Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur verið byggður í mörgum áföngum. Unnið hefur verið að uppsetningu hússtjórnar- og skjámyndakerfis við skólann til að unnt verði að samræma og hafa yfirsýn yfir stjórnun á hita- og loftræstkerfum. Verkefnið er samvinnuverkefni skólans og Fasteigna ríkissjóðs, en umsjón og hönnun er í höndum verkræðistofunnar Raftákns á Akureyri.

 

Menntaskólinn á Akureyri

Gamla skólahús Menntaskólans á Akureyri er byggt árið 1904 af Sigtryggi Jónssyni timburmeistara og er talið eitt af fallegustu timburhúsum landsins. Húsið verður málað í þremur áföngum. Byrjað var á fyrsta áfanganum síðastliðið sumar. Undanfarin ár hefur hluti gluggaramma verið endurnýjaður og verður því haldið áfram í áföngum. Búið er að hanna nýtt brunaviðvörunarkerfi í húsið. Þess má geta að sett var upp vatnsúðakerfi í húsið fyrir nokkrum árum.

 

Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum

Miklar utanhússframkvæmdir standa yfir við Sjúkarhúsið í Vestmannaeyjum. Öll handrið endurnýjuð, húsið málað að utan og gert við svalir og tröppur. Einnig settur nýr dúkur á þak hússins.

 

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Ýmsar stofnanir í umsjá Fasteigana ríkissjóðs hafa fengið andlitslyftingu að undanförnu . Má þar t.d. nefna Menntaskólann við Hamrahlíð. Verkið var boðið út og allur elsti hluti skólans var endurmálaður ásamt því að gert var við steypuskemmdir.

 

Heilsugæslan á Höfn

Miklar endurbætur voru gerðar á heilsugæslunni á Höfn á síðasta ári . Um er að ræða talsverðar steypuviðgerðir, þar sem byggingin var farin að láta á sjá. Allt ytra byrði hússins var yfirfarið ásamt því að skipt var um þakplötur. Innanhúss var allt málað, kerfisloft sett upp og öll byggingin dúklögð að nýju. Aðgengi fyrir fatlaða hefur verið bætt eftir að nýrri geislahurð var komið fyrir samhliða framkvæmdunum.

 

Þjóðleikhúsið

Síðastliðið sumar var unnið að standsetningu þvottahúss og lagnakerfa baksviðs. Einnig voru lagfærðar loftræstisamstæður og gestasnyrtingar.

 

Landbúnaðarháskólinn Hvanneyri

Lokið er við breytingu á C-álmu Ásgarðs úr heimavist í kennsluálmu.

 

Laugavegur 114-118

Viðamiklar utanhússframkvæmdir við Laugaveg 114-118 hafa staðið yfir frá því sumarið 2009. Um er að ræða endurnýjun á bakhlið hússins og lagfæringar á þaki.

 

Borgarbraut 2, Stykkishólmi

Síðastliðið sumar var farið í viðgerðir á múrklæðningu á húsinu en hún var töluvert farin að veðrast og sprungur að myndast. Húsið var síðan málað að utan, veggir og tréverk.

 

Ægisgata 2, Stykkishólmi

Á síðasta ári var húsið lagfært að utan, m.a. skipt um hluta af þakkanti og tréverk í gluggum endurnýjað að hluta. Loks voru veggir og tréverk að utan málað.

 

Þjóðbraut 13, Akranesi

Nú stendur yfir endurnýjun á neysluvatnslögnum og hreinlætistækjum í húsinu. Haustið 2010 var gólfefni í bílageymslu endurnýjað og húsið málað að innan.

 

Túnbrekka 18, Snæfellsbæ

Neðri hæð húss tekin í gegn – veggir málaðir og skipt um innihurðir og gólfefni.

 

Merkigerði 9, Akranesi

Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu undanfarið. Um síðustu áramót var lokið við endurnýjun á stórum hluta neysluvatnslagna og hreinlætistækja. Ný lyfta verður sett í húsið og á því verki að ljúka sumarið 2011. Þá verður einnig farið í utanhússviðgerðir á elsta hluta hússins en það verk var boðið út í vor og á að ljúka fyrir vetrarbyrjun.

 

Austurgata 7, Stykkishólmi

Unnið hefur verið við ýmsar endurbætur á húsinu undanfarna mánuði. Síðasta vetur var brunaviðvörunarkerfið endurnýjað ásamt reyklosunarlúgum í stigahúsum. Nú standa yfir breytingar á bílageymslu fyrir sjúkrabíla – verið að sameina tvær í eina stærri – endurnýja hurðir og gólfefni.

 

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00

Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík

Sími: 520-5600

Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is