Starfsemi Fasteigna ríkissjóðs er fjármögnuð með húsaleigutekjum en stofnanir ríkisins greiða húsaleigu fyrir afnot sín af húsnæði. Í stökum tilvikum, þegar um umfangsmeiri framkvæmdir er að ræða, er leitað eftir framlögum á fjárlögum.
Rekstrargjöld eru einkum fasteignagjöld og lögboðnar brunatryggingar en einnig kostnaður vegna leigu húsnæðis af einkaaðilum sem síðan er endurleigt til stofnana ríkisins. Sá þáttur í starfseminni hefur aukist mjög undanfarin ár.
Með viðhaldskostnaði er átt við almennt eða fyrirbyggjandi viðhald húsnæðis en til framkvæmdakostnaðar teljast meiriháttar breytingar eða endurbygging húsnæðis.
Til umsjónarkostnaðar telst launakostnaður og rekstur skrifstofu í þágu starfseminnar.

Opnunartími:
Virka daga 8:00 - 16:00
Fasteignir Ríkissjóðs
Borgartúni 7a / 150 Reykjavík
Sími: 520-5600
Kt: 690981-0259
Netfang: fastrik@fastrik.is