Hlutverk Fasteigna ríkissjóðs
Húsaleiga Fasteigna ríkissjóðs er við það miðuð að hún standi undir hefðbundnu viðhaldi og endurbótum á húsnæði og grunnbúnaði þess en einnig lögboðnum fasteignagjöldum, tryggingum og umsýslukostnaði. Verkefni Fasteigna ríkissjóðs takmarkast því við viðhald og endurnýjun húsnæðis og búnaðar en afla þarf sérstakrar fjárveitingar vegna stofnkostnaðar. Húsaleiga er bundin neysluverðsvísitölu (eldri samningar eru tengdir byggingarvísitölu) og breytist um hver áramót til samræmis við breytingar á vísitölunni. Áskilið er að leigusamningar geti tekið breytingum í samræmi við almenna stefnumörkun stjórnvalda um húsnæði í eigu ríkisins.
Fasteignir ríkissjóðs leggja áherslu á gott samstarf og þjónustu við viðskiptavini sína. Til glöggvunar og þæginda fyrir leigjendur húsnæðis er hér kveðið á um réttindi og skyldur leigutaka og leigusala. Tilgreint er hvaða þættir í rekstri og viðhaldi húseigna leigusali greiðir eða leggur til og hvað það er sem leigutaki greiðir sjálfur.
Rekstur
Leigusali greiðir eftirtalin rekstrargjöld:
- Fasteignagjöld sem innheimt eru af sveitarfélögum, þ.m.t. fasteignaskatt og lóðarleigu.
- Iðgjöld af lögboðinni brunatryggingu húseigna.
Leigutaki greiðir öll önnur gjöld við rekstur húsnæðis, s.s. (ekki tæmandi upptalning):
- Viðhald á sylindrum, lyklum og öðru smálegu.
- Gluggatjöld, þ.m.t. sólskermunartjöld, hreinsun og endurnýjun þeirra.
- Uppsetningu og rekstur símstöðva og símstöðvarbúnaðar.
- Hvers konar sérbúnað og sérhæfðar innréttingar vegna starfseminnar.
- Bónun og aðra yfirborðsmeðhöndlun á dúkum og öðrum gólfefnum.
- Kaup og hreinsun á lausum mottum í húsnæðinu.
- Rekstur aðgangs- og öryggiskerfa.
- Hvers konar fjarskipta og móttökubúnað sem starfsemin krefst, m.a. fyrir sjón- og hljóðvarp.
- Þrif og ræstingu hins leigða, utanhúss og innan, þ.m.t. gluggaþvott.
- Þrif á loftræsistokkum, loftristum og ventlum, ásamt niðurfallsristum og vatnslásum.
- Allan orkukostnað, s.s. vegna upphitunar og lýsingar hins leigða.
- Kostnað vegna neysluvatnsnotkunar þar sem hún er sérmæld.
- Hlutfall kostnaðar við húsvörslu, ræstingu og aðra sameiginlega umhirðu, svo og vegna hitunar, lýsingar og vatnsnotkunar í sameign.
- Endurnýjun hvers konar ljósgjafa, svo sem flúrpípa.
- Leigugjöld vegna tengingar brunaviðvörunarkerfis við vaktstöð.
- Eftirlit og viðhald handslökkvitækja, skv. reglum Brunamálastofnunar ríkisins.
- Uppsetningu og viðhald lokunarbúnaðar að bifreiðastæðum.
- Umhirðu lóðar og gróðurs á lóð. Í því fellst einnig hreinsun niðurfalla og þakrenna.
- Snjómokstur umhverfis hið leigða og á bifreiðastæðum. Einnig hálkuvarnir og fyrirbyggjandi ráðstafanir vegna hættu á hruni af þökum.
- Sorphirðu (ef ekki innifalin í fasteignagjöldum sveitarfélaga).
Viðhald fasteigna
Fasteignir ríkissjóðs, sem leigusali, heldur hinu leigða húsnæði við, utan sem innan, eftir því sem góðar venjur um viðhald húsnæðis segja til um. Öll verkefni sem unnin eru af Fasteignum ríkissjóðs byggja á framkvæmdaáætlun sem liggur fyrir í upphafi árs. Stofnað er til útgjalda með rafrænum beiðnum sem sendar eru til verktaka. Fasteignir ríkissjóðs áskilja sér rétt til að hafna greiðslu reikninga sem leigutaki hefur stofnað til án samráðs.
Leigutaki skal fara vel með hið leigða húsnæði og í samræmi við umsamin afnot þess. Vanræksla getur leitt til þátttöku hans í viðhaldskostnaði. Leigutaki ber kostnað af öllum búnaði, innréttingum og tækjum sem nauðsynleg eru vegna starfseminnar og ekki eru á ábyrgð leigusala, hvort heldur er laus búnaður eða fastar innréttingar og tæki. Verði hið leigða húsnæði eða fylgifé þess fyrir tjóni, skal leigutakinn gera ráðstafanir til að lágmarka tjónið svo fljótt sem verða má. Leigutaka ber að sæta umgengni iðnaðarmanna vegna viðhalds eða endurbóta, án leigulækkunar enda þótt afnot hans takmarkist um tíma vegna framkvæmda.
Leigusali framkvæmir og ber kostnað af viðhaldi og
endurnýjun á búnaði, innréttingum og kerfum sem hér segir:
Merkingar
- Kostar merkingar hins leigða utanhúss og í samnýttum rýmum innanhúss, t.d. stigahúsum og öðrum umferðarsvæðum. Leigutaki annast allar merkingar í sérnotarýmum.
Aðlögun húsnæðis
- Aðlagar húsnæði að breyttum þörfum notenda og auknum verkefnum samkvæmt nánara samkomulagi þar um í hverju tilviki fyrir sig. Stærri framkvæmdir geta kallað á mótframlag stofnunar og / eða sérstakt framlagt á fjárlögum.
Lagnir
Smáspenna
- Leggur til grunnlagnir fyrir síma, dyrasíma, tölvur og brunaviðvörunar- og öryggiskerfi (myndavéla-, aðgangsstýri- og innbrotavarnakerfi). Á spítölum og hjúkrunarheimilum kostar hann einnig lagnir fyrir útvörp, sjónvörp og sjúkrakallkerfi. Til smáspennulagna teljast líka tengiskápar og krosstengibretti. Gengið er frá lögnum í til þess gerða lagnastokka. Leigusali sér um hefðbundnar innstungur fyrir tölvur, síma og sjónvörp en leigutaki um allan annan endabúnað og tengi. Ofangreind skilgreining nær ekki til heimavista nema hvað varðar brunaviðvörunarkerfi.
Lágspenna
- Grunnlagnir að hefðbundnum rafmagnsinnstungum og ljósgjöfum en auk þess allar lagnir að rafmagnsbúnaði og -tækjum í eigu leigutaka sem nauðsynleg eru vegna starfseminnar. Til lágspennu teljast einnig allar innstungur, fastir lampar fyrir grunnlýsingu, aðaltafla og greiniskápar. Leigutaki ber kostnað af sértækri lýsingu og endurnýjun ljósgjafa, s.s. flúrpípa, startara og glópera.
- Hússtjórnarkerfi eru almennt ætluð til að spara vinnu eða orku og til að auka öryggi og yfirsýn. Búnaður sem settur er upp í þessum tilgangi telst sérbúnaður leigutaka en leigusali leggur smáspennulagnir að endabúnaði. Undantekningar kunna að vera þar sem hússtjórnarkerfið er jafnframt stýring fyrir loftræsingu og húshitun, þá kann kostnaður að skiptast á milli aðila.
Hitaveita
- Allar lagnir, ofnar og inntaksvirki.
Neysluvatn
- Allar lagnir og inntaksvirki.
Sundlaugar og pottar við heilbrigðisstofnanir og skóla
- Allar grunnlagnir en leigutaki sér um dælur, síur, klórskammtara og annan sérhæfðan búnað.
- Yfirborðsviðhald á innsteyptum sundlaugum eða pottum en leigutaki annast á sinn kostnað viðhald á „lausum“ laugum og pottum sem ekki eru hluti af grunngerð hússins.
Kælibúnaður
- Grunnlagnir, t.d. að tölvurýmum og að kælirýmum í verknámsskólum og sjúkrahúsum, en leigutaki sér um allan endabúnað og tengi, s.s. kælipressur og element.
Frárennsli
Gaslagnir og þrýstiloft
- Grunnlagnir, t.d. á sjúkrahúsum og í verknámsdeildum, en leigutakinn sér um allan endabúnað og tengi. Gengið er frá lögnum í lagnastokka eða festingar.
Loftræsing
Almenn loftræsing
- Öll almenn loftræsing á vinnustað sem gerð er krafa um samkvæmt byggingarreglugerð, þar með talinn vél- og stýribúnaður. Einnig reglulegt og samningsbundið eftirlit með loftræsikerfum, reglubundinni endurnýjun á loftsíum og eftirlit og sótthreinsun raka- og hreinsibúnaðar.
Sértæk loftræsing.
- Stofnlagnir og útsogsblásara en leigutaki sér um sérhæfðan endabúnað, s.s. stinkskápa, síubúnað fyrir skurðstofur og einangrunarrými, eldhúsháfa og síubúnað í kennslueldhúsum, kælibúnað í tölvuverum og útsogsrana frá málmsmíði og sprautuklefum. Spónsugukerfi eru alfarið á kostnað leigutaka.
Hreinlæti
Salerni
- Salerni ásamt stuðningsörmum þar sem þess er þörf.
Vaskar.
- Vaskar til handþvotta ásamt hefðbundnum blöndunartækjum.
Sturtur.
- Sturtur og búnað þar sem aðstæður og vinnuumhverfi krefst slíkrar aðstöðu, s.s. á spítölum og við íþróttaaðstöðu í skólum.
Öryggi
Brunavarnir
- Brunaviðvörunarkerfi ásamt tengingum við viðurkennda vaktstöð þar sem þess er krafist samkvæmt byggingarreglugerð. Einnig kostnað af reglubundnu viðhaldi og prófunum brunaviðvörunarkerfa, þ.m.t. endurnýjun á rafhlöðum og perum í út- og neyðarlýsingu.
- Leggur til og sér um uppsetningu á handslökkvitækjum við upphaf leigumála, skv. byggingarreglugerð. Leigutaki greiðir hins vegar fyrir samningsbundið eftirlit og viðhald handslökkvitækja, skv. reglum Brunamálastofnunar Íslands.
Aðgengi
Lyftur
- Lyftur, s.s. kveðið er á um í byggingarreglugerð. Leigusali greiðir viðhald og árlegt skoðunargjald Vinnueftirlits ríkisins og einnig reglubundnar úttektir þjónustuaðila. Leigutaki sér um uppsetningu og viðhald lyftubúnaðar við sundlaugar / potta við heilbrigðisstofnanir.
Rampar, skábrautir og hurðaopnun
- Tryggir aðgengi hreyfihamlaðra svo sem kostur er, sbr. ákvæði í byggingarreglugerð.
Matseld
Eldhús – stóreldhús (skólar, sjúkrahús, hjúkrunarheimili og stærri stofnanir m. fleiri en 100 starfsmenn).
- Viðeigandi innrétting, vinnuborð með vöskum, eldavél með 2-4 hellum, útsogsháfur, steikarpanna á fæti, gufuofn, uppþvottavél, kælir og frystir sem hæfa umfangi, ásamt hreinlætistækjum sem krafist er.
Eldhús – súpueldhús (minni stofnanir m. færri en 100 starfsmenn)
- Viðeigandi innrétting, vinnuborð með vöskum, eldavél m. 2 hellum, útsogsháfur, bökunarofn, kælir og frystir sem hæfa umfangi, uppþvottavél, ásamt hreinlætistækjum sem krafist er.
Mötuneyti
- Afgreiðslulína með hitaborði og kæli.
Kaffistofur
- Hæfileg eldhúsinnrétting með vaski.
Bítibúr á spítölum
- Hæfileg eldhúsinnrétting með vaski.
Innréttingar
Aðalafgreiðsla
- Afgreiðsluborð eða þjónustuborð í aðalafgreiðslu stofnunar.
Mötuneyti og eldhús
Aðrar innréttingar
- Leigusali viðheldur og endurnýjar skóhillur í skólum þar sem þess er krafist að nemendur gangi ekki um á útiskóm. Einnig snaga í anddyri þar sem þannig háttar til og í baðaðstöðu ef um það er að ræða. Leigutaki leggur til alla fata- og munaskápa sem hann telur þörf á.
- Allar aðrar innréttingar, s.s. fataskápar, lyfjaskápar og lyfjainnréttingar, föst skrifborð, bókahillur, lagerhillur og lagerskápar, vinnu- og vinnsluborð í verknámi og kæli- og frysti klefar aðrir en í mötuneytum, eru á ábyrgð leigutaka.
Embættisbústaðir
Búnaður
- Eldavél, háfur með kolasíu, bökunarofn, uppþvottavél og kæliskápur með frysti. Einnig hefðbundið loftnet og tenglar fyrir sjónvarp.
Sólpallar og heitir pottar
- Leigusali leggur ekki til sólpalla né heita potta við embættisbústaði en viðheldur þeim sem fyrir eru. Leigusali getur hins vegar heimilað leigutaka að setja upp sinn eigin pall eða pott.
- Leigusali setur ekki upp nuddbaðkör, aðeins hefðbundin baðkör og / eða sturtur.
- Gerð er sú krafa til leigutaka að hann hirði lóð þannig að sómi sé af. Að því uppfylltu er viðhald hjá leigusala, meti hann það nauðsynlegt.
Ruslatunnur
- Leigutaki ber kostnað af ruslatunnum. Leigusali mun hins vegar ganga frá aðstöðu fyrir tunnur eftir því sem hægt er og aðstæður leyfa.
Bílastæði og lóðir
- Gerð er sú krafa til leigutaka að þeir hirði lóðir og nánasta umhverfi þannig að sómi sé af.
- Leigusali tekur að sér minni háttar lóðarframkvæmdir og kostar frágang á lóðarmörkum, s.s. efni standa til hverju sinni. Ekki eru reistar girðingar nema rík ástæða sé til.
- Leigusali annast viðhald á malbikuðum eða hellulögðum bílastæðum og gangstéttum.
- Ef fallist er á kröfur leigutaka um hita undir stéttar eða tröppur, þá greiðir leigusalinn fyrir slíkar breytingar.
- Leigusali sér um viðhald á útiljósum en leigutaki sér um peruskipti.
Listaverk
Leigusali annast viðhald á listaverkum sem eru hluti húsbyggingar, s.s. mósaikmyndum, eftir því sem unnt er og skynsamlegt getur talist. Ef brugðið er út af þeirri reglu skal það gert að höfðu samráði við notendur. Leigusali ábyrgist þó ekki viðhald málaðra veggskreytinga. Leigusali annast almennt ekki viðgerðir á frístandandi listaverkum á lóðum, s.s. styttum og skúlptúrum, enda oftar en ekki gefin stofnuninni sjálfri til minningar um gengna starfsmenn eða starfseminni til heiðurs. Listaverk á lóðum listasafna eru alfarið á ábyrgð safnanna.
Varðveisla húsa
Leigusali leggur sig fram um að varðveita upprunalegt útlit og sérkenni húsa og leggur þannig sitt af mörkum við varðveislu menningararfsins. Við viðhald friðaðra húsa skal leita álits og ráðgjafar hjá Húsafriðunarnefnd eftir því sem ástæða þykir til. Í slíkri vinnu þarf að taka tillit til notagildis í innra skipulagi þannig að húseignin geti þjónað þeirri starfsemi sem í húsinu er.
Sérstök tilvik
Skilgreiningar hér að framan eru viðmið eða leiðbeiningar en aðstæður geta verið mismunandi milli húsa. Það kann því að þjóna hagsmunum leigusalans að teygja sig lengra í einhverjum tilvikum gegn eftirgjöf á öðrum sviðum. Þá kann líka að vera réttlætanlegt að taka þátt í búnaðarkaupum ef það kemur í stað meiri útgjalda á öðrum sviðum. Þá geta þær aðstæður skapast að notandi vilji taka þátt í kostnaði við dýrari útfærslu / tæki / búnað en leigusali er reiðubúinn að leggja til. Skoða þarf slíkt í hverju tilviki. Mikilvægt er að hliðstæð tilvik milli notenda séu leyst með sambærilegum hætti.
Góð umhirða gagnast öllum!
Útgefið í nóvember 2010